I´ve got the mojo!!
04.11.2007 22:05:55 / ellerti

Spurning um að blogga??? (íþróttapistill)

Já ég held það svei mér þá... löngu kominn tími á blogg... það er bara búið að vera svo mikið að gera hjá mér... eða eitthvað!!  Þetta er engan veginn afsakanlegt.. Sá að það hafði einhver komið inná heimasíðuna í dag (fyrir utan mig)... hver var það???  Auglýsi eftir þeim sem kom inná bloggið mitt í dag?  Anna varst það þú?

 En jæja annars er nú barasta allt gott að frétta úr sveitinni.. Ég bara alltaf á fullu í vinnunni... og sat meira að segja fótboltinn á hillunni lengi vel en ég er farinn að hreyfa mig svona ca. tvisvar í viku sem er ekki mikið á þessum bæ en það er ágætt að fara rólega af stað því að maður var orðinn svo þungur á sér að annað eins hefur varla sést sko...  Fór ekki í fótbolta í tvo mánuði og svo þegar ég ætlaði að byrja þá tók maður strax eftir því að maður hafði bætt á sig nokkrum (mörgum) kílóum.. hugurinn var alveg tilbúinn í fótbolta... en því miður fylgdu fæturnir og líkaminn ekki eftir því sem hugurinn ætlaði sér... en þetta kemur nú hægt og rólega... ég er að spila með oldboys á Hellu og á Hvolsvelli sem er bara frábært til að kynnast köllum úr sveitunum og svo líka bara svona rosalega gaman... Svo fer maður kannski að æfa með K(F)R í vetur en þeir taka þátt í 3.deildinni... ég vil helst koma mér í ágætisform áður en ég stekk út í djúpu laugina svo ég sökkvi ekki til botns og drukkni...

En það er ekki bara ég sem er farinn að taka á því hérna því að Anna Margrét er búin að vera rosalega dugleg í einhverju sem kallast Jump Fit... Ég þori varla að fara í nánari útlistun á því sem felst í því en eftir þvi sem mér skilst að þá er þetta þol og styrktarþjálfum með sippuböndum...

Axel er kominn í fullt af íþróttum og ef ég man rétt þá er hann að æfa, fótbolta, blak, borðtennis, frjálsar og svo var hann að tala um að byrja í fimleikum líka...

svo það er nóg að gera í íþróttaiðkun á heimilinu og þessu fylgir svo maraþon þvottamennska sem hvílir þó nánast alfarið á húsmóðurinni þar sem húsbóndanum tekst alltaf að klúðra einhverju þegar kemur að því að setja í/taka úr þvottavél...

Sólon Breki er nú ekki byrjaður í neinum íþróttum en hann er þó sérfræðingur í sinni eigin íþróttagrein sem ég vill bara kalla því einfalda nafni... Draslatil...  Þá er hann orðinn nokkuð góður í því að stökkva í sófanum og stökk hann núna um daginn ábyggilega 60 cm...

Elín Kristín er orðin ótrúlega stór og er hún farin að skríða um allt hús og rífa og tæta.. ótrúlega gott fyrir svona 7 mánaða skvísu... hún er hrikalega sæt stelpan og brosir hún sínu breiðasta bara... Hún er byrjuð hjá dagmömmu og er hún þar mán-fim frá tólf til fjögur...

 Sólon Breki er farinn að tala og er hann farinn að rífast við foreldra sína... ef maður segir honum að eitthvað sé bannað þá segir hann bara NEI... en hann getur verið rosalega sætur þegar hann er að tala og segir hann stundum við mann... love you pabbi... með sínum stíl :lol:

Við fengum loksins teikningar af húsinu frá Verkfræðistofunni í dag og verð ég að segja að þetta hús lítur bara hrikalega vel út... það verður með fjórum svefnherbergjum, tveimur baðherbergjum, þvottahúsi, 20 fm eldhúsi, 40 fm stofu, gufubaði, 54 fm bílskúr og svo verður sturtuaðstaða fyrir heitan pott :)  Nú fara teikningarnar til byggingafulltrúanna hér á Hvolsvelli og vonandi verður þetta samþykkt sem fyrst svo maður geti farið að byrja á þessu.. búið að vera allt of lengi í bígerð... maður er orðinn mjög þreyttur á biðinni eftir húsinu...

En jæja ég gæti skrifað svo miklu meira en ég er að hugsa um að láta þetta duga í bili...

bestu kveðjur frá Hvolsvelli, Ellert og fj.


» 2 hafa sagt sína skoðun

20.06.2007 22:35:07 / ellerti

Fjölskyldan komin austur

 Jæja þá varð loksins af því... ég er búinn að fá fjölskylduna mína austur á Hvolsvöll... við fengum einbýlishús á leigu og erum við búin að koma okkur ágætlega fyrir í húsinu... við erum búin að mála svefnherbergið og svo er maður búinn að vera að reyna að ditta að svona í hjáverkum en það er brjálað að gera hjá mér í vinnunni.. ég hef bara verið í fríi í tvo daga síðan að fjölskyldan flutti austur...  

Húsið sem við fengum á leigu er einbýlishús sem var byggt árið 1962 og er ástandið á því eftir því... það er t.d. sama eldhúsinnrétting í húsinu og var þegar það var byggt... Húsið er með tveimur svefnherbergjum en reyndar er annað svefnherbergið mjög stórt þar sem það var eitt sinn tvö herbergi en er búið að gera það að einu... þar sofum við Anna, Sólon og Elín Kristín... Svo eru tvær stofur þ.e. ein venjuleg og svo flott sólstofa þar sem er rosalega kósý að sitja á kvöldin... svo er bílskúr stórt þvottahús og svo er ótrúlega stór og flottur garður við húsið... eða öllu heldur á hann eftir að verða flottur... honum hefur ekki verið sinnt sem skyldi síðustu árin og er hann því í svolítilli niðurníðslu... en ég með mína grænu fingur ætla sko að laga það og gjörbreyta garðinum... ég hef notað þau frí sem ég fæ frá vinnunni til að dunda mér í garðinum og hef ég t.d. tekið úr einu beði og búið til annað, háþrýstiskolað mosagrafnar gangstéttarhellur í garðinum og svo er stefnan að setja niður tómata, gúrkur, og alls kyns góðgæti í garðskála sem er í bakgarðinum... En í þeim garðskála eru jarðarber sem að Sólon litli er sko alveg að fíla í botn... hann tínir öll ber uppí sig um leið og þau verða rauð... 

já ég gleymdi að segja frá því hérna... það er búið að skýra litlu prinsessuna og fékk hún nafnið Elín Kristín Ellertsdóttir, í höfuðið á báðum ömmum hennar... voru ömmurnar skírnarvottar og voru þær báðar rosalega montnar af nöfnu sinni... hún var skírð í Vídalínskirkju í Garðabæ þann 3.júní síðast liðinn... hún er orðinn rosalega stór og myndarleg... hún er líka rauðhærð eins og pabbi hennar er (var)... 

Annars er bara allt gott að frétta héðan að austan... Axel er að komast inn í fótboltann hérna en hann fór á sína fyrstu fótboltaæfingu í á þriðjudaginn og vann hann hitt liðið 6-5... já hann vann... hann skoraði 6 mörk fyrir sitt lið af 8... Svo þjálfarinn vildi láta hann æfa með 5.flokk þó hann sé á yngra ári í 6.flokk... flott hjá honum... 

Anna er búinn að panta pláss á leikskóla fyrir Sólon Breka og fær hann inná leikskólann í haust var henni sagt... hún er skiljanlega orðin nokkuð þreytt á að hafa hann heima því hann lætur sko sannarlega hafa fyrir sér... hún er sko að standa sig eins og hetja að sjá um börnin því það er sko ekkert auðvelt verk..  Sólon er t.d. búinn að kúka tvisvar í baðið þegar hann hefur verið í baði... J En jæja ég hugsa að ég fari að segja þetta gott í bili...  

Sólskinskveðjur til allra af austan...  

Ellert og Co.

 

p.s. endilega kíkið við ef þið eigið leið um Rangárvallasýsluna :)


» 3 hafa sagt sína skoðun

03.05.2007 13:37:04 / ellerti

Jæja... þetta mánaðarlega

Þá er komið að færslunni... hvað á maður að segja frá... jú við er búin að setja íbúðina á sölu og eru settar á hana 18,2 milljónir...http://mbl.is/mm/fasteignir/fasteign/?eign=246203 vonandi að maður nái að selja hana... stelpan sem átti heima á neðri hæðinni hjá okkur seldi samskonar íbúð á 3 dögum held ég að það hafi verið...Svo erum við að leita okkur að húsi á Hvolsvelli til að leigja á meðan við erum að bíða eftir þessu blessaða húsi... maður er að verða geggjaður á því hvað þetta er lengi allt saman... Ég er reyndar fluttur út úr fangaklefanum... var líka komið gott... ég sat inni í tvo mánuði og er núna á skilorði :) Bý hjá Friðriki frænda mínum en hann á flott einbýlishús hérna á Hvolsvelli... með heitum potti og öllu sko ;) Svo það er nú töluvert skárra en grágrænmálaður og kuldalegur fangaklefi...

Ég er lítið heima hjá mér en þar er Anna að standa sig eins og hetja í uppeldinu á öllum börnunum... Axel er rosalega duglegur að hjálpa mömmu sinni og Sólon Breki er ótrúlega góður við litlu systur sína... hann klappar henni og kyssir... svo þegar maður spyr hann hvað systir hans segi þá vælir hann :) Ég var einmitt heima í gærkvöldi og fékk ég að setja hann í rúmið sitt... ég lagði hann í rúmið og sagði honum að bangsi væri að fara að lúlla... Sólon lagðist þá við hliðina á bangsanum og svo rétti ég Sólon stútkönnuna hans... þá gaf hann bangsa sopa úr glasinu og kyssti bangsa góða nótt... Hann er algjör gullmoli strákurinn... Sú litla er orðin ótrúlega stór og falleg... hún þyngdist alveg rosalega vel fyrsta mánuðinn... rúmlega hálft kíló á viku... Svo er hún orðin rauðhærð eins og pabbi hennar var þegar hann var lítill (ekki er það nú verra)...

Ætla að segja þetta gott í bili...

Kv. Ellert Geir

... gleymdi smá... verð að tala um snilldina Liverpool... komnir í úrslit meistaradeildarinnar... ég held ég þurfi að fá mér frí 23.maí og vera bara fullur yfir leiknum :)


» 2 hafa sagt sína skoðun

13.04.2007 08:01:23 / ellerti

Og það var stelpa...

Jæja ætli sé ekki kominn tími fyrir þetta mánaðarlega... nei ég er ekki að tala um neitt sem tengist blæðingum... ég er að hugsa um að blogga smá... 

Það merkilegasta sem ég get sagt frá er það að miðvikudaginn 28.3.2007 um klukkan 8:55 kom lítil stelpa í heiminn... hún var 53 cm og 4285 gr eða 17 merkur...  Smá fæðingarsaga:

Við vorum boðuð á fæðingardeildina klukkan 7 um morguninn þar sem ákveðið hafði verið að barnið skyldi tekið með keisaraskurði... við mættum á tilskyldum tíma og var okkur vísað inná stofu á sængurkvennadeildinni þar sem við áttum að bíða eftir því að Anna yrði flutt í svæfingu... það var ekki fyrr en rétt um 8 að komið var að sækja Önnu og var hún flutt upp á skurðstofu á meðan ég klæddi mig í George Clooney skurðlæknagallann minn... fékk þennan helvíti flotta græna læknagalla og svo fékk ég náttúrulega hvíta klossa og til að toppa þetta fékk ég hárnet og svona læknagrímu... var ekkert smá vígalegur í þessari múnderingu...

 Svo þegar búið var að undirbúa Önnu undir skurðinn þá var mér boðið upp og inná skurðstofuna og sat ég hjá Önnu... Var ég við höfuðið á henni en búið var að setja upp smá tjald á milli mín og skurðlæknanna svo að ég þyrfti ekki að horfa á þegar hún yrði skorin... svo þegar læknarnir voru búnir að skera og tilbúnir að fara að ná í barnið var mér sagt að ég mætti standa upp og kíkja yfir tjaldið... svo sá ég hvar læknirinn fór bara með hendurnar inní Önnu og tók upp barnið... í fyrstu tilraun kom bara efri hlutinn og þegar ég sá hann hugsaði ég með mér, "þetta er sko strákur" því mér fannst barnið alveg eins og Sólon Breki... svo þegar það kom svo allt upp þá sá ég að það vantaði eitthvað... eða var bara hola :)  En þetta var þessi glæsilega stelpa og var hún bara hin hressasta eins og mamman sem er búin að standa sig eins og hetja í þessu öllu saman...

 Fjölskyldan var svo sameinuð heima á sunnudeginum eftir fæðinguna en við Anna og sú litla fórum heim á laugardeginum... Ég fékk rúmlega tveggja vikna frí til að hjálpa til heima hjá mér í smá stund en núna er ég aftur mættur til vinnu hérna fyrir austan...  Neita því nú ekki að það er svolítið erfitt að vera svona langt frá fjölskyldunni sinni... erfitt að geta ekki tekið þátt í heimilisstörfunum...

En jæja nóg í bili...

Kveðja Ellert "ríki"


» 4 hafa sagt sína skoðun

12.03.2007 19:13:49 / ellerti

iii.kafli

Jæja héðan er allt gott að frétta... lífið heldur áfram... eða öllu heldur skríður áfram eins og snigill fastur í drullu... Afrekaði það núna um daginn að sofna um klukkan 16:30 og sofa alveg þangað til klukkan 7 morguninn eftir... hef held ég barasta aldrei verið eins hress í vinnunni... ótrúlega skýr í kollinum... eins og nýr maður hreinlega..

Dagurinn í dag er búinn að vera ágætur... vaknaði klukkan 7 eins og síðustu daga og labbaði í vinnuna... það er óneitanlega mjög þægilegt að þurfa bara að standa upp úr rúminu og vera þá mættur í vinnuna. Ekkert markvert gerðist í vinnunni og síðan ég kláraði að vinna klukkan fjögur þá er ég bara búinn að vera að leita að leiðum til að láta tímann líða, og er PS2, gítarinn og bækurnar að standa sig sem og tölvan og internetið. Ótrúlegt hvað er hægt að festast yfir Youtube.. ég skrifaði Borat í leitarkassann og fann 24 mínútna þátt með honum þar sem hann var í bretlandi.. bara fyndinn karakter..

Ég fann geisladiskana mína sem ég var búinn að vera að leita að síðustu vikuna... Ingólfur sem er að vinna með mér hann tekur alltaf geisladiska sem maður gleymir að taka úr bílunum og felur þá á einhverjum ótrúlegum stöðum... Fann þá uppá millilofti inní bílskúr...

Var farinn að sakna þess að hlusta á diskinn með Sigga Pálma (sonur Pálma Gunnarssonar)... mæli með þessum disk fyrir alla sem hafa eitthvað vit á tónlist... rólegur og góður diskur sem hittir í mark... fékk hann fyrir 1000 punkta á Esso í síðasta mánuði og sé ekki eftir punktunum í þennan disk...ég hugsa að ég setji hann í PS2 á eftir og hlusti á hann þegar ég er að lesa og áður en ég fer að sofa...

Ágætt að minnast á það að barnið er ekki enn komið í heiminn en ef það kemur ekki í þessari viku þá verður Anna annað hvort sett af stað eða þá að barnið verði bara tekið með keisaraskurði.. hlakka til að hitta erfingja númer 2... vonandi fær maður að vera viðstaddur núna :)

Jæja, kveðja frá Hvolsvelli,

Ellert Geir


» 3 hafa sagt sína skoðun

01.03.2007 20:10:18 / ellerti

Færsla númer 2 af austan

Jæja ég er búinn að koma mér nokkuð vel fyrir í fangaklefanum mínum... búinn að búa um mig á dýnu, kominn með bækurnar, gítarinn og töskurnar mínar hjá mér... svo er ég búinn að setja PS2 í samband svo ég geti aðeins leikið mér... Ég er nú samt ótrúlega hissa á því hvað mér hefur gengið vel að lesa og spila á gítarinn... en ég hef svo sem eiginlega ekkert gert neitt annað af viti... bara unnið, verið í PS2, spilað á gítarinn og lesið...

langt síðan maður hefur lesið svona mikið því ég er nú ekki mjög mikill lesmaður... eiginlega bara enginn lesmaður...

Hef samt alltof lítið hreyft mig... þarf að fara að hlaupa ca. 5 km á dag og reyna að koma mér í form... ég þarf líka á fótbolta að halda... verð að koma mér í einhvern hóp hérna til að spila með...

Hlakka til að koma heim til mín og hitta fjölskylduna... erfitt að venjast því að vakna ekki við... mama mama... dudda dudda... hjal í Sólon Breka... ótrúlegt hvað það að heyra þessi hljóð á morgnana geta bjargað deginum hjá manni...

Jæja segi þetta gott í bili

Kveðja, Ellert Geir


» 3 hafa sagt sína skoðun

27.02.2007 23:15:19 / ellerti

Austurland á glettingi... eða hvað?

Jæja þá er maður kominn austur... Mætti hingað austur um fjögur leytið og byrjaði að vinna... það hefur ekkert gerst ennþá en þó er ég á leiðinni í flutning á sumarhúsi um klukkan hálf eitt... Skrýtið að vera svona langt frá fjölskyldunni sinni... ég er að verða búinn að koma mér vel fyrir í vistarverum mínum sem eru... fangaklefi... Tók með mér bækur til að lesa í fangaklefanum til að gera dvölina þægilegri... bækurnar sem ég tók með mér eru, Jóga og íþróttir e.Guðjón Bergmann, Grafarþögn og Vetrarborgin eftir Arnald Indriða og loks The hitchhiker´s guide to the galaxy eftir Douglas Adams...

Svo var PS2 tekin með og spurning hvort verði ofan á... PS2 eða bækurnar... Já og svo fékk gítarinn að fylgja með ef maður skyldi hafa tíma frá bókalestri og tölvuleikja-leik til að glamra á hann...

Já ég var sko með drekkhlaðinn Renaultinn þegar ég fór úr bænum í dag...held svei mér þá að afturendinn hafi dregist eftir götunni með eldglæringum og tilheyrandi...

Ég er að vinna núna í sex daga og fer heim svo á mánudaginn næsta og verð þá heima í þrjá daga og fer þá aftur í vinnu í sex daga...

Enn styttist í fæðingu nýjasta barnsins í fjölskyldunni... við fórum að hitta ljósmóðurina í dag og fórum í sónar... var barnið hið hressasta og brosti bara til foreldra sinna... er ekki laust við að maður vilji fara að fá að sjá barnið sitt... í réttu ljósi...

En jæja... er að hugsa um að halda áfram að vinna...

Kveðja að austan, Ellert Geir


» 1 hafa sagt sína skoðun

31.01.2007 11:54:49 / ellerti

Allt að gerast!!

Halló og góðan daginn... jæja ég held að það sé kominn tími á smá blogg... bloggaði síðast fyrir jól og það hefur nú margt gerst síðan... það er helst að segja frá því að nú stendur til að við flytjumst austur á Hvolsvöll öll fjölskyldan en ég ætla að reyna að henda upp 176 fermetra einingahúsi þarna... Það verður munur að fara úr 76 fermetrum í 176 fermetra hús... Er í viðræðum núna við finnskt fyrirtæki um kaup á húsinu sem er mjög flott... þá er hann einnig að athuga fyrir mig hvort ég geti verið með umboð fyrir fyrirtækið hérna á Íslandi... heimasíða hjá fyrirtækinu er www.kastelli.fi og upplýsingar um húsið er á síðu http://www.kastelli.fi/talot/talomallistot/valokaari/Hoviherra+176+L

Annars stendur til að ég hætti að vinna í bænum þann 21.febrúar og byrji fyrir austan stuttu seinna en ég er búinn að fá varðstjórastöðu þar... ég verð þar einn þangað til að skólinn er búinn og svona hjá Axel en þá kemur fjölskyldan austur...

Verður ábyggilega skrítið að vera einn svona langt í burtu frá fjölskyldunni... en þetta verður bara tímabundið... svo verður nóg að gera hjá manni í vinnunni og að reyna að koma húsinu upp.

En ég ætla að segja þetta gott í bili...

Kveðja,

Ellert Geir

Við fórum í sónar í gær og sáum litla krílið... virðist það hafa það nokkuð gott og spurning hvort það komi nokkuð út..

» 0 hafa sagt sína skoðun

09.12.2006 06:55:28 / ellerti

Sjá ég boða yður mikinn fögnuð sem veitast mun öllum lýðnum... því ég er í dag endurfæddur

Jæja... ég er kominn aftur... búinn með öll Hvolsvallarævintýrin í bili...  er kominn heim og búinn að vera heima nokkuð lengi...  ákvað allt í einu að skoða bloggið mitt og náði að rifja upp lykilorðið og ætla að sýna smá jólalit :)

 fór að skoða athugasemdirnar hjá síðustu færslu og sá að Jóka hafði sagt að það yrðu átök þegar ég kæmi heim...
Ójú... það voru sko átök Jóka... svo mikil átök að úr varð barn :D

Annars er allt fínt að frétta... Sólon byrjaður að labba... já og hlaupa nánast... já og Axel er eins og alltaf rosalega duglegur...

Meðgangan gengur fínt og er Anna alveg viss um að þetta sé stelpa en ég held að þetta sé strákur... ég bíð rosalega spenntur eftir barninu sem er áætlað að komi 28.mars.

Látum þetta duga í bili... jólakveðja...

Ellert Geir


» 3 hafa sagt sína skoðun

29.05.2006 11:50:40 / ellerti

Heimfarardagur :)

Jæja þá er kominn mánudagur og fer ég heim í kvöld... jibbí... búið að hlakka rosalega til alla vikuna að koma heim og hitta Önnu og strákana... Það er búið að vera rólegt hjá mér í vinnunni síðan ég mætti til starfa... ekkert stórmál komið til kasta lögreglunnar í Rangárþingi eystra síðan ég mætti... En ég er búinn að taka samt nokkra góða túristarúnta um sýsluna og skoða margt og mikið lítið og skrítið... hugsa að maður fari jafnvel með fjölskylduna hérna um sýsluna í sumar í ferðalag...

Jæja læt þetta gott heita í bili... takk fyrir mig.. sjáumst Ellert


» 4 hafa sagt sína skoðun

26.05.2006 16:22:39 / ellerti

Kominn föstudagur...

Jæja þá er kominn flöskudagur... Enn einn rólegi dagurinn í vinnunni... einn tekinn fyrir of hraðan akstur í dag... eins og í gær... og daginn þar áður... svo kemur kosningadagur á morgun... hvað á maður að kjósa? X-Á eða X-D? Eða bara sleppa því? Já ég held að ég geri það bara... nenni ekki að fara að kjósa núna... Hugsa að X-Á fengi atkvæðið mitt ef ég væri í bænum en þar sem maður er ekki í bænum þá verður X-Á að vinna þetta án minnar hjálpar.

Ég fletti Morgunblaðinu í morgun og það var varla ein einasta blaðsíða sem ekki var þakin kosningaáróðri... XBé, XD, Samfylkingin og hvað sem þetta heitir allt saman... Ég verð feginn þegar þetta verður búið og þá getur maður horft á sjónvarp, flett blöðunum og farið á netið án þess að það sé allt troðfullt af auglýsingum og áróðri...

Áfram Ísland!

Á mánudaginn fer ég heim til fjölskyldunnar minnar... ég hlakka rosalega til að komast heim og sjá fjölskylduna mína... ætla að nota tækifærið hérna og senda kveðju til fjölskyldunnar minnar... Elska ykkur ;)

kveðja, Ellert (pabbi)


» 2 hafa sagt sína skoðun

25.05.2006 16:57:27 / ellerti

Fimmtudagur!

Jæja þá er fimmtudagurinn langt liðinn... klukkan að verða fimm... og maður er bara að bíða meðan tíminn líður... Annar dagurinn í vinnunni að verða búinn og var dagurinn bara nokkuð góður...

Rólegt og þægilegt í sveitinni... maður sér það hvað þetta er mikil sveit þegar maður hugsar til þess að maður er búinn að fá eitt útkall þessa tvo daga og það var tilkynning um lausar rollur við þjóðveginn... og verkefnið var leyst með því að hringja í bændur á nálægum bæjum og spyrja þá hvort gæti verið að þeir ættu rollur í óskilum.. alveg magnað :)

Ég held að ég sé búinn að fara 100.000.000.000 sinnum inná barnaland að skoða strákana mína í dag... sakna þeirra og Önnu...:cry:


» 2 hafa sagt sína skoðun

24.05.2006 10:24:43 / ellerti

Hvolsvöllur

Jæja þá er maður kominn á Hvolsvöll og byrjaður að vinna... kom á Hvolsvöll um klukkan ellefu í gærkvöldi og horfði á Seinfeld með Davíð frænda á meðan ég blés upp vindsængina mína... fór svo að sofa og vaknaði um klukkan 07:45 til að fara í vinnu klukkan 08:00... Mætti svo í vinnuna og maður er bara búinn að vera að reyna að koma sér inní tölvukerfið og svoleiðis í morgun.. Annars bara rólegheit.. Sakna samt fjölskyldunnar minnar kveðja úr sveitinni, Ellert

» 2 hafa sagt sína skoðun

15.05.2006 00:17:35 / ellerti

Fótbolti og aftur fótbolti

Jæja þá er helgin búin... vinnuvikan byrjuð hjá flestu fólki en hjá mér var vinnuhelgi sem breyttist í raun í veikindaveraheimahelgi... var heima á föstudaginn þar sem Sólon Breki var veikur og fór svo í vinnuna á laugardaginn og svo á sunnudaginn ákvað ég bara að vera heima þar sem Anna var orðin fárveik líka og Sólon greyið með eyrnabólgu... þannig að nú er ég kominn í frí fram á miðvikudagskvöld og er það nú bara hið besta mál...

Liverpool varð bikarmeistari á laugardaginn eftir hreint út sagt hrikalega taugatrekkjandi leik við West Ham... ég náði að horfa á allan leikinn meðan ég var í vinnunni og var ég svoleiðis að fara á taugum yfir þessu öllu saman... ég hef horft á nokkra leiki í sófanum á lögreglustöðinni og hafa þeir yfirleitt endað illa og var ég hræddur um að sú yrði raunin þetta skiptið... leikurinn byrjaði ekki vel og lenti Liverpool undir 2-0 snemma leiks... náðu þeir að minnka muninn í 2-1 rétt fyrir hálfleik og losnaði aðeins um flækjuna í maganum á manni... en samt voru neglurnar nagaðar og hárið reytt (gæti það verið ástæðan fyrir hárleysinu?!?)... snemma í síðari hálfleik náði Steven Gerrard svo að jafna leikinn með góðu marki... við þetta róaðist maður og hélt að þetta væri að koma hjá mínum mönnum... svo skömmu síðar komust West Ham menn yfir aftur með fáránlegu marki úr fyrirgjöf... svo leið leiktíminn ótrúlega hratt og var maður að bíða eftir að Liverpool næði að jafna leikinn til að knýja fram framlengingu... svo þegar leiktíminn var liðinn og aðeins viðbótartíminn sem dómarinn bætti við eftir... þegar maður var nánast alveg búinn að gefa upp alla von og farinn að grenja í sófanum, gerðist það... Steven Gerrard skoraði með þessu líka svakalega skoti lengst utan af velli... maður hoppaði upp úr sófanum og stóð fyrir framan sjónvarpið og æpti og öskraði eins og simpansi :) Síðan leið leiktíminn og við tók nokkuð viðburðalaus framlenging og að henni lokinni var ljóst að úrslit leiksins myndu ráðast í vítaspyrnukeppni... ég hef aldrei haft góða tilfinningu fyrir því að liðið sem ég held með vinni í vítaspyrnukeppni... en vítaspyrnukeppnin var fljót að líða og eftir fjórar spyrnur á hvort lið var ljóst að Liverpool væru bikarmeistarar árið 2006... þvílík snilld... Svolítið líkt og úrslitin í meistaradeildinni á síðasta ári þar sem við unnum Milan í vító... Come on you Reds!!!

En jæja þetta er nóg í bili... takk fyrir mig og áfram Liverpool... nú er það bara HM í sumar :)  Þessi pistill var kannski ekki alveg fyrir stelpurnar ;)

kv. Elvis Presley


» 2 hafa sagt sína skoðun

11.05.2006 15:11:21 / ellerti

Stubbaknús!

Jæja það er kominn fimmtudagur og núna er ég heima með Sólon Breka en litli kallinn er veikur... hann er með 39 stiga hita... en hann er samt rosalega duglegur... hann vælir ekkert mikið þó að hann sé með hósta og hann hefur varla geta komið niður mat síðan í gær... Ég reyndi að gefa honum mauk áðan en hann hóstaði honum uppúr sér jafnóðum... hann vaknaði nokkrum sinnum í nótt hóstandi og hann sofnaði alltaf jafnóðum... svo í morgun vaknaði ég og tók hann uppí til mín og við feðgarnir knúsuðumst til hádegis... bara þægilegt að knúsa hann...

En jæja maður hefur um fátt að tala núna.. lífið gengur sinn vanagang... styttist ógnvænlega í það að maður fari að vinna á Hvolsvelli... minna en tvær vikur 8|!!! Hrikalegt... það verður erfitt að kveðja fjölskylduna :(

Ég er að hugsa um að láta þetta duga í bili... takk fyrir mig, Ellert


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2